ÍBÚÐ 401
Íbúðin snýr að sjónum og er ofarlega í húsinu fjarri umferð og nið. Í þessari íbúð er útsýni til allra átta. Listaverkið Sólfarið eftir Jón Gunnar Árnason blasir við er setið er í útskotsglugga norðurhliðar. Þar er einstakt útsýni og tilvalið að tylla sér með bók undir lesljósi. Eldhúsið er opið og samtengt stofu. Þar eru tveir ofnar, hefðbundinn ofn og ofn með val um stillingu á örbylgjueldun eða venjubundna eldun. Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð úr hnotu með stáli í borðplötu og vaski, eyjan er sérsmíðuð úr stáli með ávölum brúnum á hliðum og borðplötu sem mætir neðri skápum eyjunnar með fallegri hönnun. Eldavél er á eyju með innbyggðan háf. Stofuna prýðir arinn á austurhlið og hefur hver íbúð sér loftun. Á austurhlið íbúðar eru svalir með útsýni í norðvesturátt að Esju og Móskarðshnjúkum. Hjónasvíta hefur innbyggð veggljós yfir rúmgafli, tvöfölda skápa og þaðan er innangengt á flísalagt baðherbergi með innbyggðum speglaskápum og innréttingu úr granít. Sturta og handlaugartæki eru innbyggð frá Grohe og sturtuhaus er festur í loft
Gangur íbúðar er klæddur veggpanil úr hnotu sem sameinast eldhúsi auk þess sem fataskápur og setbekkur í anddyri eru einnig úr hnotu. Rúmgott svefnherbergi með skápum er næst anddyri. Á móti er annað baðherbergi og inn af því er þvottahús. Allir skápar íbúðar er sérsmíðaðir fyrir hvert rými og ná upp í loft. Möguleiki er á þriðja svefnherbergi eða skrifstofu með því að loka hluta stofunnar af. Íbúðinni fylgir lokaður bílskúr í bílakjallara og inn af honum er geymsla íbúðar.
UPPLÝSINGAR
Þar af bílskúr
32,1 m²
Svalir
4,5 m²
Þaksvalir
Nei
Arinn
Já
Hæð
4
Herbergi
3–4
Birt stærð
157 m²
Þar af geymsla
12,3 m²