Skilmálar.

ÁBYRGÐARAÐILI VEFSINS

IÐA ehf.
451020-0800
Hvassaleiti 147
103 Reykjavík
idafasteignir.is
bjort@idafasteignir.is

HEIMILD TIL VINNSLU PERSÓNUUPPLÝSINGA

Vefkökur (e. cookies)

Vefsíðan notar vefkökur frá fyrsta aðila sem eru nauðsynlegar fyrir virkni vefsins. Þá notar vefurinn einnig vefkökur í þágu vefgreiningar. Notkun á þeim fer fram í þágu lögmætra hagsmuna til að tryggja virkni vefsins og bæta upplifun notenda. Ávallt er hægt að andmæla notkun þeirra. Nánar er fjallað um vefkökur hér neðar í stefnunni.

VEFKÖKUR (E. COOKIES)

Vefkökur eru litlar textaskrár sem eru vistaðar á tölvunni þinni eða í öðrum snjalltækjum þegar þú heimsækir vefsíðu. Vefkökur frá fyrsta aðila (e. first-party cookies) koma frá sama léni og vefsíðan sem þú heimsækir (í þessu tilviki idafasteignir.is), á meðan vefkökur frá þriðja aðila (e. third-party cookies) eru vefkökur sem koma frá öðrum lénum.

Vefsíðan idafasteignir.is notar þær vefkökur frá fyrsta aðila sem nauðsynlegar eru fyrir virkni vefsins. Þá er ein vefkaka frá þriðja aðila, Google, notuð í þágu vefgreiningar en þær upplýsingar eru nafnlausar.

Notkun á vefkökum fer fram í þágu lögmætra hagsmuna til að tryggja virkni vefs og bæta upplifun notenda. Hægt er að andmæla notkun þeirra. Hægt er að breyta öryggisstillingum á flestum vöfrum þannig að þeir taki ekki á móti vefkökum. Einnig á að vera hægt að eyða þeim.

Við notum tölfræði frá Squarespace til að greina notendahópinn og gera upplifun hans á vefnum og efni hans betra. Gögnin sem við notum eru nafnlaus.

Útg. 1.0

10. september 2024.

LAGALEGUR FYRIRVARI

Lagalegur fyrirvari vegna höfundarréttar

Heimilt er að hlaða niður efni vefsins til skoðunar sé það gert til einkanota en ekki til frekari vinnslu. Fjölmiðlar geta haft samband til að fá ákveðnar ljósmyndir og/eða myndbönd.

Lagalegur fyrirvari vegna tölvupósts

Upplýsingar sem koma fram í tölvupósti og eftir atvikum viðhengjum, sendum frá netföngum okkar, gætu innihaldið trúnaðarupplýsingar og/eða einkamál og eru eingöngu ætlaðar þeim sem hann er stílaður á. Efni hans og innihald er á ábyrgð þess starfsmanns sem sendir hann ef það tengist ekki starfsemi okkar. Ef tölvupóstsending hefur ranglega borist einhverjum ber að gæta fyllsta trúnaðar, tilkynna sendanda og eyða mótteknum gögnum eins og kveðið er á um í 47. gr. laga nr. 81/2003 um fjarskipti.